Nú eru tímar sem reynir á. Hrunið hefur gjörbreytt umgjörð íslensks samfélags og ljóst er að erfiðleikar eru framundan. Skattahækkanir og niðurskurður hafa verið boðaðir af ríkisstjórninni, þrengt hefur verið að atvinnulífinu og auknar byrðar lagðar á almenning. Svartsýni er víða ríkjandi nú þegar orðið kreppa er á hvers manns vörum. Engu að síður er mikilvægara nú en oft áður að við Vestfirðingar missum ekki sjónar af sóknarfærunum sem hafa skapast því við erum í góðri aðstöðu til að nýta þá möguleika sem eru framundan. Í sveitastjórnarkosningunum í vor verður kosið um hvernig við getum hlúið að samfélagslegum grunngildum okkar en á sama tíma stillt saman strengi til að sækja fram og grípa þau tækifæri sem eru til félagslegar- og efnahagslegrar uppbyggingar.
Tækifæri til uppbyggingar
Svokallaðir draumar um Ísland sem alþjóðlega fjármálamiðstöð eru orðnir að engu. Góðærið sem fjármálabólan dreif áfram átti sér fyrst og fremst stað á suðvestur horni landsins. Ótti um lækkun eignaverðs dregur kjark úr fjárfestum og þeim sem hyggja á atvinnuuppbyggingu. Enginn vill fjárfesta og sjá verðmæti eigna sinna lækka. Hér á Vestfjörðum er þessi áhætta ekki jafnmikil og annars staðar og því má jafnvel búast við að fjárfestar beini sjónum sínum hingað í auknum mæli.
Í fjölmiðlum er (jafnvel) talað um hættuna á stórfelldum brottflutningi fólks, sérstaklega ungs fólks, af landi brott. Á Vestfjörðum fjölgaði íbúum fyrstu níu mánuði ársins í fyrsta sinn í rúman áratug. Á nýlegri ráðstefnu matvælaframleiðenda sagði Bill Gates, að nú myndi athygli heimsins beinast aftur að frumframleiðslunni. Þetta eru áhugaverðar fréttir fyrir Vestfirðinga sem byggja atvinnulíf sitt fyrst og fremst á frumframleiðslu; sjávarútvegi, landbúnaði og að ógleymdri ferðaþjónustunni. Þrátt fyrir að gríðarlegir fjármunir hafi bókstaflega gufað upp í hruninu eru enn til peningar á Íslandi og samkeppnisstaða okkar um þessa fjármuni hefur batnað.
Aðhald og forgangsröðun
Það verður ekki framhjá því litið að niðurskurður ríkisstjórnarinnar mun einnig ná hingað eins og til annarra staða. En hér er reyndar ekki af mörgu að taka og ákaflega hættulegt ef niðurskurður heggur of nærri grunnstoðum okkar samfélags. Rekstur Ísafjarðarbæjar hefur verið traustur undir forystu Sjálfstæðisflokksins og gengið vel hvort sem borið er saman við önnur sambærilega stór eða stærri sveitarfélög. Bæjarstjórninni hefur borið gæfa til þess að búa í haginn og forðast allt bruðlið sem víða hefur verið áberandi. Fjárfestingar bæjarfélagsins hafa fyrst og fremst verið til uppbyggingar á innviðum samfélagsins og til að efla grunnþjónustu við íbúa.
Samdráttur í tekjum sveitarfélagsins krefst þess að leitað sé nýrra leiða og að gætt sé aðhalds í rekstri bæjarfélagsins. Við verðum hins vegar að gæta þess að falla ekki í sömu gryfju og ríkisstjórnin í þeim efnum. Svarið er ekki fólgið í því að hækka álögur og skatta á íbúana þar sem því verður við komið. Slíkar aðgerðir eru allt eins líklegar til þess að hafa þveröfug áhrif. Fjárhagur heimilanna er víða erfiður og auknar opinberar álögur munu þrengja enn frekar að fjölskyldum landsins. Við getum ekki búist við efnahagsbata ef hið opinbera sogar til sín alla fjármuni með skattlagningu og heftir þannig mögulegan bata. Það er álíka viturlegt og reyna að hífa sjálfan sig upp á hárinu.
Aðhaldið verður að byggjast á sátt um forgangsröðun. Við verðum að ná samkomulagi um hvernig við nýtum best sameiginlega sjóði okkar með það að leiðarljósi að standa vörð um grunnþjónustuna. Samfélags- og efnahagslegir innvirðir verða að vera í lagi ef við ætlum að nýta þau tækifæri sem okkur standa til boða.
Framundan er barátta
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar að undanförnu hafa skapað óvissu á öllum sviðum atvinnulífsins – en sér í lagi í sjávarútveginum – og einkennast af auknum álögum, skattahækkunum og óútfærðum hugmyndum um breytingar. Á Vestfjörðum hefur hvorki ríkt fjármálabóla né bruðl og við eigum ekki að sætta okkur við að grunnþjónusta samfélags okkar verði skorin undir sársaukamörk. Það nær engri átt að það verði skorið meira niður á Vestfjörðum vegna óráðsíu annarra. Við verðum að draga línu og segja hingað og ekki lengra.
Sveitarstjórnarkosningarnar næsta vor eru mikilvægur þáttur í baráttunni framundan. Það verður að spyrna við fótum gegn þeirri stefnu sem ríkistjórnin rekur í landsmálunum, ef við ætlum ekki að fyrirgera möguleikum okkar til framíðar. Stefna Sjálfstæðisflokksins veitir hins vegar von um að okkur takist að nýta tækifærin sem framundan eru. Til þess þurfum við styrka forystu samhents fólks.
Ég býð mig fram til þess að leiða Sjálfstæðisflokkinn í Ísafjarðarbæ í þeirri baráttu, í sveitarstjórnarkosningunum í vor.
Eiríkur Finnur Greipsson