Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur?
Í dag buðu stuðningsmenn mínir uppá vöfflur og annað góðgæti. Vel á annað hundrað manns mættu á kosningaskrifstofuna að Aðalstræti 24 á Ísafirði. Með því að smella á þennan tengil má skoða myndir sem teknar voru við þetta tækifæri.
Þá bauð ég ungum kjósendum á kynningarfund í kvöld og mættu þar á þriðja tug gesta. Hér eru myndir frá fundinum.
Hér má sjá myndir af fundi mínum á Þingeyri þann 9. febrúar síðastliðinn.
Framboðsfundurinn sem haldinn var í Stjórnsýsluhúsinu var einnig myndaður. Smelltu hér til að sjá þær myndir.
Því miður gleymdist myndavélin þegar fundirnir á Flateyri (8. febrúar) og Suðureyri (10. febrúar) voru haldnir, en á þá fundi mættu samtals yfir 60 manns!